UM MIG
Björn K. Björnsson
PGA Golfkennari
Ég byrjaði í golfi í kringum 1990 á Hvaleyrinni í Hafnarfirði. Árið 1992 gekk ég í Golfklúbbinn Keili sem hefur verið mitt annað heimili síðan. Ég reyndi fyrir mér í keppnisgolfi en fann eftir nokkurra ára barning að golfkennslan væri meira fyrir mig.
Ég hóf feril minn sem golfkennari árið 2008 og byrjaði í golfkennaranámi 2009 í Golfkennaraskóla PGA Ísland og hef starfað við golfkennslu síðan þá. Ég hef kennt kylfingum á öllum aldri og getustigum bæði hér heima og erlendis.
Ferill:
– Golfkennaranemi í Þýskalandi 2010 - 2012
-Útskrifaðist sem PGA golfkennari 2012
– Golfkennari hjá Golfklúbbi Grindavíkur 2013
– Barna og unglingakennari hjá Golfklúbbnum Keili 2013 - 2016.
– Almenn golfkennsla og byrjendakennsla frá 2017
– Golfkennari og skólastjóri í golfskóla Golfskálans, ferðaskrifstofu á Spáni 2018 - 2024
Contact Us
Sendu mér línu
Leyfðu mér að hjálpa þér að ná hámarks árangri á golfvellinum.
Nýttu þér tækifærið og hafðu samband núna ef þú hefur einhverjar frekari spurningar.